tag:blogger.com,1999:blog-2880942145556699122024-03-13T22:23:55.747-04:00SíSí fríkar úti!SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.comBlogger34125tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-80163355321112886452010-09-21T22:02:00.003-04:002010-09-21T22:10:18.852-04:00Að komast aftur í gang...Ok, þetta gengur ekki lengur!
Verð hreinlega að byrja bloggið aftur. Tvær ástæður:
1) Gaman að eiga þennan database um sérnámið þegar frá líður
2) Leyfa fólki sem er ekki á facebook að fylgjast aðeins með mér

Lífið er gott og hefur verið frá síðasta bloggi mínu í mars. Kannski helst fyrir þá ástæðu að ég er ástfangin upp fyrir haus - af stelpu sem ég hitti í New York í vor :)
Svo komst ég að í krabbameinslækningum í Columbus, Ohio næsta sumar. Ohio State University er stærsti háskólinn í USA og er dreifður um fylkið en læknisfræðihlutinn er staðsettur í Columbus. Þar er mjög góður krabbameinsspítali, James Cancer Hospital. Columbus er 700.000 manna borg og þekkt fyrir gay-friendly viðhorf og mikið háskólalíf. Svo það verður spennandi að sjá svolítið meira af USA.

Því verður að njóta síðasta vetrarins í Boston í botn!SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-21669654290644336272010-03-26T18:44:00.005-04:002010-03-26T19:13:34.030-04:00CCUGet ekki annað en bloggað aðeins um síðustu 2 vikur á coronary care unit rotationinni minni! Jiiiiiih, það hefur verið alveg ferlega gaman á CCU - ég held ég eigi svei mér þá eftir að sakna cardiologiu mikið! CCU teymið er mjög skemmtilegt að því leyti að við erum bæði með mjög veika sjúklinga á gjörgæslunni og líka hjartasjúklinga sem eru á almennri deild. Þannig fylgjum við þeim oft frá því þeir leggjast inn fárveikir þangað til þeir útskrifast heim af almennri deild. Og við höfum haft fullt af góðum tilfellum þennan mánuðinn. Þar má m.a. nefna tvo tvítuga stráka með myo/pericarditis - annar reyndist hafa CMV myocarditis en hinn lagðist inn fárveikur með pericardial tamponade og reyndist hafa 900 cc af pericardial vökva sem var tappað af. Ekki alveg klárt hvað er að þeim gaur þó svo berkla-pericarditis sé efst á lista. Svo fengum við inn 30 ára karlmann með WPW sem lagðist inn með a. fib. Hjartsláttur hans keyrði í 160-200 slögum á mínútu með víðcomplexa óreglulegu patterni en hann hélt uppi góðum blóðþrýstingi! Svo við reyndum að hlaða hann með íbútilíði í 12 klst (gúlp...) þangað til loks var ákveðið að rafvenda honum - og það gekk vel. Það gekk reyndar ekkert að finna aukabrautina í el-phys rannsókninni svo hann kemur inn seinna electívt, þeir munu sennilega fara gegnum pericardium-ið og vinna sig inn frá epicardium til að finna aukabrautina. Svo höfum við fengið inn tvo sjúklinga með hypertensive emergency sem reyndust hafa prímer hyperaldosteronisma. Annar var á nitroprússíð-dreypi um tíma (sem ég hef by the way aldrei notað áður) og gekk vel. Fengum svo 2 sjúklinga alveg fárveika með cardiac amyloidosu - önnur var í akút nýrnabilun líka með fluid overload með nýrnainvolvement. Við sjáum óvenjumikið af amyloidosu hér því þetta er aðalamyloidosucentrið í USA. Fólk kemur alls staðar að til að fá cutting edge meðferð og komast að í lyfjatræölum. Cardiac amyloidosis er leiðindagreining og ekki margir sem lifa ár með cardiac involvement. Svo var tilfellið sem reyndi mest á þessa vikuna sjúklingur um sextugt sem kom inn í hjartabilun sem fór í hjartastopp klukkutíma eftir innlögn og endurlífgunin stóð meira eða minna í 3 klukkutíma með intermittent blóðþrýstingi. Reyndist vera í alls konar arrythmíum á milli, m.a. Torsade, SVT með/án blóðþrýstings, gleiðkomplexa tachycardiu sem reyndist á tímum vera VT og á tímum SVT með aberrancy og svo þriðju gráðu AV-blokk. Algjörlega óljóst hvað var hér í gangi en ég held ég hafi farið í gegnum alla hugsanlega ACLS prótókolla á þessum 3 tímum. En það kemur væntanlega í ljós í krufningu hvað var hér á ferð, hugsanlega e-s konar infiltratívur sjúkdómur í hjarta...
Jæja, nóg komið af læknisfræðilegu jargoni í bili :)SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-80368466118470525092010-02-28T14:12:00.002-05:002010-02-28T14:50:33.369-05:00Blogg, blogg, bloggTími til kominn að taka púlsinn á dvöl minni hér í USA.
2. árið er nú meira en hálfnað og mér finnst tíminn fljúga áfram - raunar alltof hratt. Býst við því að þetta sé svona þegar maður hefur gaman af lífinu og tilverunni :=)
Það var nóg um að vera í haust - fékk fullt af góðum gestum til mín. Meðal annars Svava systir og Binni kærastinn hennar í október (sem btw trúlofuðu sig um síðustu helgi :), saumaklúbburinn kíkti á mig í nóvember, fékk góða lækna í heimsókn frá Íslandi og kíkti á gay senuna í New York með MJ. Svo var toppurinn á haustinu náttúrulega 30 ára afmælið 1. des! Já, ég ákvað að taka afmælið með trompi - það var sannkallað afmælisþema hálft árið þar sem ég kom mér í besta form sem ég hef nokkurn tíma verið í, dressaði mig upp og fékk mér nýja klippingu - sannkallað makeover! Og svo var boðið í partý, um 30 manns sem mættu gíraðir í hákarl, brennivín og ýmsar aðrar veitingar. Hélt upp á það með vinkonu minni hér í prógramminu sem varð 30 ára 4. des svo það hentaði vel. Og fólk skemmti sér alveg konunglega og kláraði brennivínið (annað árið í röð sem brennivínið klárast) og hákarlinn rétt kláraðist (með hjálp góðra Íslendinga). Og svo var farið upp í Cambridge að dansa - hvað annað!
Svo fékk ég 2 vikna jólafrí og eyddi jólunum með fjölskyldunni á Íslandi sem var náttúrulega alveg yndislegt. Skata, hamborgarahryggur, sveppasúpan hennar ömmu og svínakjöt - algjört sælgæti! Kom svo aftur hingað til Boston fyrir gamlársdag og fagnaði með fólkinu heima á miðnætti með því að horfa á flugeldasýningu í Boston Common kl. 7 PM, borðaði svo nautasteik í góðra Íslendinga hópi og endaði loks á pöbb hér í grenndinni með vinum úr prógramminu þar sem skálað var í kampavíni á miðnætti. Verð samt að segja að nýja árinu er hvergi jafnvel fagnað og heima á Íslandi. Það er bara svo hátíðlegt að halda í okkar hefðir - matur með familíunni, skaupið, flugeldar og svo partý. Þetta barasta hafa útlendingar ekki!
Nýja árið hefur svo verið gott, nú er ég komin á fullt í oncologíu pælingar og er að skoða prógrömm út um öll Bandaríkin. Svo það er mikið um ferðalög þetta vor.
Svo gengur vel í prógramminu, er einmitt á göngudeild núna - 4 vikna rotation - og verð að segja að ég kann alltaf betur og betur við mig á göngudeildinni. Hér virkum við sem heimilislæknar fyrir fólk sem við fylgjum eftir í göngudeild. Hef kynnst ýmsu þar, það er m.a. ótrúlegt að sjá hversu margir hafa misst vinnuna síðan kreppan skall á. Það er daglegt brauð að spyrja fólk hér að því hvort það eigi peninga fyrir mat, þak yfir höfuðið, hvort það sé í fíkniefnaneyslu og hvort það eigi einhvern að... og þá skiptir einhvern veginn minna máli hvort HbA1c sé 7 eða 8 eða hvort LDL sé innan targets. Ég veit alla vegana að þessara spurninga spurði maður ekki heima en hér er þetta oftar en ekki aðalumræðuefnið. Svo er ég með marga sjúklinga frá Haití og það eru nú meiri hörmungarnar sem sumir ganga í gegnum þar. Sumir tala enga ensku og hafa ekki getað haft upp á ættingjum sínum, aðrir mæta ekki í bókaða tíma (hver veit hvar það fólk er niðursett) og svo eru margir sem eiga ættingja sem eiga ekki þak yfir höfuðið þarna niður frá. 1,5 milljónir manna eru heimilislaus, 200.000 manns látnir og annað eins stórslasað. BMC er með hjálparhóp þar sem fólk hittist einu sinni í viku og er aðstoðað við að hafa uppi á ættingjum sínum o.s.frv. Einhvern veginn breyta þessir hlutir viðhorfi manns til annarra hluta í heiminum, m.a. kreppunni á Íslandi...
En það eru sem betur fer líka jákvæðir hlutir sem gerast á göngudeildinni, t.d. parið frá Kenya sem kom til mín brosandi út að eyrum um daginn því þau höfðu verið aðskilin í 5 ár en hún nýkomin með dvalarleyfi og flutt til USA. Eða stelpan sem hafði lést um 15 kg frá því ég sá hana fyrir ári með því að hætta að borða snakk og gos! Eða 28 ára heróínfíkillinn sem ég kom inn á spítala síðasta sumar með bullandi enterococcus endocarditis og mitrallokuleka sem gengur nú vel með á suboxone.
Annars hefur febrúarmánuður verið viðburðarríkur, þar má m.a. nefna ferð til Íslands, þorrablót í New York og nýleg ferð til Chicago sem er nú alveg stórkostleg borg - iðandi af mannlífi!
Wellsí, hef þetta ekki lengra í bili.SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-37551277988143319492009-11-03T12:34:00.002-05:002009-11-03T12:41:15.166-05:0031. októberHalloween! Án efa eitt skemmtilegasta djammkvöldið hér í USA! Minnir mig svolítið á gamlárs heima - ákveðin eftirvænting í loftinu, biðraðir í vínbúðum og allir á leið út að skemmta sér :)
Og það gerðum við svo sannarlega líka, íslenska djammliðið hér í Boston. Klædd upp sem Madonna, Cowgirl og Slash þá fórum við vítt og breitt um Boston-borg og enduðum svo í partýi hjá áður óþekktum nágranna mínum sem var hrifinn af íslenskri djamm-þrautseigju. Mér var reyndar ískyggilega oft ruglað saman við 1920´s flapper píu sem var reyndar alls ekki slæmt eftir að ég áttaði mig á því hvað það þýddi...

("In 1920´s the word "flapper" described a young woman who rebelled against convention. Like jazz music, the gangsteand, the speakeasy and the funloving flapper was a product of 1920s urban America. Most American women were not flappers but the flappers shocking behavior set a tone that helped many women explore Jazz Ages freedom without fear.")

Já - ekki amalegt það...SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-31293839850072390002009-10-21T19:28:00.002-04:002009-10-21T19:48:01.514-04:00Hálfnað verk þá hafið erÓtrúlegt hvað tíminn líður hratt...

Nú er ég að verða hálfnuð með tímann minn hér í Boston og hef hafið undirbúning að næsta kafla - nefnilega umsókn um hem/onc fellowship (sérnám í blóðsjúkdóma/krabbameinslækningum). Já, sumir vilja meina að ég hafi tekið kúvendingu í vali mínu á sérnámi en satt best að segja þá hafði ég aldrei ákveðið 100% að fara í hjartalækningar - valið stóð alltaf milli þess og krabbameins.
Og fellowshipið hefst væntanlega sumarið 2011, það er reyndar alveg hugsanlegt að ég verði áfram í Boston en þó líklegra að ég færi mig eitthvað annað. Nú er tekið við annað umsóknarferli, ekki ósvipað því sem ég gekk í gegnum fyrir 2 árum. Umsóknir, personal statement, CV, meðmælabréf, viðtöl - og svo kemur þetta allt í ljós í júní á næsta ári :)SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-49094947798551626182009-07-03T20:13:00.002-04:002009-07-03T20:26:09.112-04:00SvipbrigðiJæja, nú er kominn tími á eins og eitt blogg!
Úff, hef gert svo margt síðastliðinn mánuð að mér fallast nánast hendur að fara að segja frá því öllu - held ég verði að gera þetta í upptalningarstíl eins og Pógó, stuttum upptalningarstíl með nánari details to follow í komandi bloggum.
- kláraði step 3 í byrjun júní, nú verður næsta próf eftir ca. 2 ár - þ.e. internal medicine board prófið (er byrjuð að lesa, jæks!)
- sumarfrí á Íslandi/í Danmörku í byrjun júní, var alveg yndislegt
- sumarfrí á Miami fyrir viku, var þvílík upplifun fyrir Íslendinginn sem hefur ekki áður kynnst fólki sem á bíla fyrir 100 milljónir...
- byrjaði sem resident á CCU rotation fyrir 2 dögum, það verður án efa krefjandi (með glænýja interna sem eru að læra á kerfið) en skemmtilegt!

En verð að eyða smápúðri í að tala um titilinn á þessu bloggi - svipbrigði... hef aldrei fengið jafnmörg komment á mín eigin svipbrigði eins og á þessu eina ári hér í USA. Spítalaliðið hér og þá aðallega sérfræðingarnir eru steinhissa á öllum mínum svipbrigðum í vinnunni - Dr. Benjamin sagði við mig í dag að hún gæti nánast séð hjólin snúast í hausnum á mér þegar ég hugsa og spekulera á stofugangi, haha og augabrúnin mín (sú vinstri) er nánast orðin alþekkt hér á BMC. Og ég er að spá hvort þetta sé ekki kúltúrelt! Tjáum við okkur meira með svipbrigðum á Íslandi heldur en hér?!? I would luv some input...SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-82926358272963033502009-05-26T06:16:00.002-04:002009-05-26T06:27:29.673-04:00VA-blizzVá hvað maí hefur liðið hratt!

Hef verið í þvílíkri sælu á VA-spítalanum í West-Roxbury þennan mánuðinn. Hef að vísu verið að leggja inn annan hvern dag til kl. 19 en aðra daga hef ég losnað á hádegi. Og 2 daga mánaðarins var ég með 0 sjúklinga og þurfti því ekkert að mæta! Já, alveg yndislegur lokamánuður á árinu og svo tekur við sumarfrí í næstu viku.
Annars tók ég forskot á sumarfríssæluna um miðjan mánuðinn þegar við Ólöf skelltum okkur á Cape Cod með 15 frökkum og 3 könum. Leigðum sumarhús (sem var svona hálfgerð villa því Cape-urinn er að mestu sumarleyfisstaður ríka fólksins hér). Það vildi svo til að þetta var akkúrat júróvisjónhelgi svo við hlustuðum mikið á júróvisjónlög og við Ólöf reyndumst fróðastar um keppnina (frakkarnir vissu lítið og kaninn bara ekki neitt!) - hmmm... veit ekki alveg hvort við vorum stoltar af því samt, haha....
Cape Cod er alveg yndislegur staður, strendur og litlir sætir smábæir út um allt og allir í chillaðri stemmningu. Kíktum á Provincetown sem er þekkt fyrir gay skemmtanalíf, svakalega kósý bær á tánni á Cape-num.
Svo er ferðinni heitið til Íslands með stuttu stoppi í Köben eftir rúma viku - það verður yndislegt að kíkja heim :)SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-3450901638427706942009-04-29T20:25:00.002-04:002009-04-29T20:48:12.776-04:00Að vilja vera eða ekki veraVerð að segja ykkur aðeins frá skrautlegum karakterum sem ég hef kynnst á spítalanum...

Boston Medical Center var áður þekktur sem Boston City Hospital og sinnti öllu fátæka fólkinu í Boston. Þetta hefur að mörgu leyti enn haldist í því fari - að vísu er alltaf farið með sjúklinga á þá bráðamóttöku sem er næst en einhvern veginn þá leitar fátæka fólkið mikið hingað. Og það er beinlínis ástæðan fyrir því að sumir vilja fara í sérnám á BMC. Theresa vinkona hefur t.d. ákveðið að hún ætlar að sérmennta sig í brjóstakrabbameini í spænskumælandi fátækum konum og þá er BMC góður staður!
Hef nú verið á almennri deild í nærri 8 vikur og hef kynnst ýmsu skondnu. Vorum t.d. með karl um daginn sem var lagður inn drukkinn (sem gerist nú yfirleitt ekki en það var einhver spurning hvort hefði liðið yfir hann og því þótti betra að fylgjast aðeins með honum). Svo hverfur karlinn eitthvað út af stofunni sinni og dúkkar svo aftur upp. Sérfræðingurinn fer eitthvað að kíkja á hann og finnur vodkapela í öðrum sokknum og karlinn svo drukkinn að ekki er hægt að útskrifa hann! Daginn eftir leit hann vel út á stofugangi, hafði runnið af honum og svo átti að útskrifa hann eftir stofugang um hádegisbil. Heyrðu, þá var karlinn aftur orðinn svo drukkinn að hann stóð ekki í lappirnar!!! Svo 3. daginn hafði runnið af honum og ég var með pappírana tilbúna kl. 08 svo hægt væri að senda hann út áður en hann kæmist í áfengi. Nema hvað að þá fundust skórnir hans ekki og það tók 3 klst. að hafa uppi á skóm handa karlgreyinu - sem betur fer tókst okkur að halda honum inni á herbergi þangað til og loks komum við honum út!
Svo hef ég nú í þrígang verið með stelpu sem kemur inn til okkar úr fangelsi eftir að hafa innbyrt alls konar hluti. Hún hefur m.a. étið skeið, plastgaffal, klósettpappír og stærðarbita úr plastkassa. Kemur í fylgd fangavarða sem reyna að passa hvað hún borðar þarna í fangelsinu en henni tekst iðulega að troða ofan í sig einhverju öðru en mat. Og kemur þá til okkar í magaspeglun svo hægt sé að ná í þessa hluti!
Annars er ég víst með met í því hversu margir sjúklingar strjúka frá okkur þennan mánuðinn. Einhver minna sjúklinga hefur annað hvort stungið af af deildinni eða útskrifað sig gegn læknisráði nánast hvern einasta dag sl. 2 vikur. Ég held það sé íslenski hreimurinn - hann hljómar svolítið harkalega - held þessir sjúklingar séu barasta hræddir við mig!
Mér fannst samt verst þegar kallinn með skorpulifur og varicublæðingar (blæðingar í vélinda) með hemoglobin upp á 60 heimtaði að fara heim að drekka um daginn! En það var ekki hægt að sannfæra hann um að vera hjá okkur - hann sagðist bara myndu koma aftur ef hann myndi slappast eitthvað...SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-67292987236934637672009-04-21T19:01:00.002-04:002009-04-21T20:16:11.439-04:00Bara í BandaríkjunumAðalfréttin hér í Boston þessa dagana er "the Craigs list killer" - gaur sem hitti vændiskonur á hinum fínustu hótelum hér í Boston og rændi svo af þeim pening. Nema hvað að hann skaut líka eina þeirra til bana.
Og svo kom í ljós í gær að hann er 2. árs læknanemi við BU (Boston University) ! - sem er tengt BMC (a.k.a. Boston University Medical Center)!!!
Fréttamenn stóðu í röðum fyrir utan spítalann í dag og reyndu að ná tali af hvaða starfsmanni sem labbaði framhjá þeim. Er viss um að fréttin hafi verið í gangi allan daginn á þessum fréttastöðvum hér - örugglega búið að greina þetta í tætlur, finna familíuna, sálgreina gaurinn og tala við vinina - var hann efnilegur læknir? Eða sýndi hann merki um psychopatha-persónuleikahegðun? Borðaði hann Cocoa Puffs? O.s.frv. o.s.frv.
Bara í Bandaríkjunum...SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-11155081922525357712009-04-16T21:31:00.002-04:002009-04-16T21:39:14.420-04:00Mús?Ok, þetta var pínu scary....
Var rosalega bissí í vinnunni í dag. Fengum 5 nýja sjúklinga þegar við mættum kl 07 í morgun, komu allir upp á deild milli 5 og 6 og því náði næturvaktin ekki að kíkja almennilega á þá. Vorum því með 13 sjúklinga í morgun, gengum stofugang + skoðuðum þessa 5 nýju. Cointerninn minn var í fríi svo það var extramikið að gera. Deildarlæknirinn svo í göngudeild eftir hádegi og ég að útskrifa 7 sjúklinga, gera 5 nýja sjúrnala + hugsa um karlmann með hratt vaxandi graftarpoll í vinstri nára - jamms, brjálað að gera.
Og svo, eftir 13 tíma vinnu, erum við deildarlæknirinn á röntgen að skoða CT niðrá röntgen af náranum - og ég sé eitthvað kvikindi hlaupa yfir gólfið.... mús? kakkalakki?... veit ekki, en ég stökk ekki upp og elti! Og enginn annar sá - það var scary... annað hvort var fólk svona upptekið af CT skanninu eða ég bara búin að vera of lengi í vinnunni!?!
Hef aldrei séð kvikindi á BMC en mér er minnistætt atvik í New Orleans á þvagfæraskurðstofunni á Charity spítalanum - kakkalakki hljóp þar yfir gólf og einn læknaneminn stappaði hann í klessu með hælnum! Og engum datt í hug að taka upp klessuna...SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-82440385680170276472009-04-15T19:26:00.003-04:002009-04-15T19:47:51.374-04:00Líður að lokum fyrsta árs...Nú er intern árið mitt senn á enda og ég er í huganum farin að gera árið svolítið upp.

Þetta hefur verið gott ár. Ekki jafnerfitt og ég bjóst við. Það er alltaf talað um að í USA sé endalaus vinna og vissulega er hún meiri en heima - en langt í frá óyfirstíganleg.
Hér eru læknar á þessu stigi námsins svo rosalega dediceraðir, það er ætlast til að við séum "all over it", þ.e. með allar upplýsingar á hreinu um okkar sjúklinga á stofugangi og það hentar mér afskaplega vel að læra í umhverfi þar sem nákvæmni er í fyrirrúmi höfð (þar sem ég er svona nett obsessív...).
Hvað varðar vinnutíma þá er erfitt að henda reiður á nákvæmum tölum því þetta er mismunandi eftir rotationum. Eitt er víst að við mætum kl. 7 á morgnana og á venjulegum degi þegar ekki er verið að leggja inn þá getur maður búist við því að fara kl. 17, svona að meðaltali. En fyrr ef maður er búin með alla sína vinnu - og ef manni tekst að útskrifa alla sína sjúklinga þá þarf maður alls ekki að mæta! Hefur gerst tvisvar hjá mér (heitir að "win the game"), í bæði skiptin var ég reyndar á vakt um kvöldið svo þetta var ekki algjör frídagur!
Hef séð ýmislegt hér á BMC sem ég sá lítið af heima - dæmi:
- sickle cell anemia/crisis - erum með svoleiðis sjúklinga hjá okkur í hverri viku, hafði barasta aldrei séð sjúkling í sickle cell crisis fyrr en ég kom hingað!
- HIV - mikið af HIV smituðum sjúklingum hér sem eru á götunni og því ekki á HAART og koma inn með AIDS og opportunistiskar sýkingar
- lifrarsjúkdómar - hep B/hep c, skorpulifur, HCC - þetta sá maður svo lítið af heima, binge drinking fer tvímælalaust betur með lifrina...
- pulmonary hypertension - á BMC er einn helsti expert heims í lungnaháþrýstingi og við sjáum því óvenjumikið af þessu hér
- amyloidosis - aftur, BMC er með eitt besta center USA í amyloidosu
- fráhvarfsmeðferðir - mikið um sjúklinga á heroíni hér, á methadone sem fráhvarfsmeðferð. Svona sjúklinga sá maður varla heima.
Svo er ýmislegt öðruvísi hér, hér eru allir sykursýkisjúklingar settir á insúlín við innlögn og po meðferð stöðvuð á meðan. Hér hef ég enn ekki séð neinn fá gentamicin! - þeir virðast bara alveg hættir að nota það, sömuleiðis er digoxin afar lítið notað.

Jæja, þetta endaði kannski á því að verða hálfboring læknisfræðileg upptalning - get sagt ykkur svona í lokin að ég er á súperteymi þennan mánuðinn á almennri lyflæknadeild. Co-interninn minn er vel lesinn Grikki frá Krít, deildarlæknirinn svakaklár stelpa og sérfræðingurinn er ung kona, nýlega komin hingað til BMC og ótrúlega áhugasöm um að kenna okkur. Svo við hendumst um ganga spítalans, súperefficient og höfum því nægan tíma til að lesa og rökræða. Sérfræðingurinn raðar upp sjúklingum og leyfir okkur að skoða og giska hvað sé að og fer daglega yfir efni sem við stöndum ekki nógu klár á - þetta er by far besti mánuður ársins!SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-12026292808657191612009-04-04T16:06:00.002-04:002009-04-04T16:22:13.644-04:00RólegheitJæja, kominn tími á að hefja aftur bloggfærslur eftir hlé síðastliðins mánaðar!

Ég hef áttað mig á því að það hefur tekið mig svona eins og eina meðgöngu að aðlagast USAísku samfélagi. Ég var algjörlega á útopnu hérna fyrstu mánuðina - fara allt sem ég hugsast gat, út að borða, drekka, djamma, djúsa - það var alltaf eitthvað í gangi! Ég held það hafi verið stórborgarlífið sem hafði þessi áhrif á mig, manni fannst allt svo brjálæðislega frábært :)
Og ég stimplaði mig heldur betur inn í hópinn hér á BMC - SíSí léttgeggjaða, alltaf að gera eitthvað kreisí! Held ég hafi nú samt toppað allt með spilavítisferðinni minni... það var nefnilega þannig að eitt fimmtudagskvöld í október vorum við að drekka bjór, nokkur í prógramminu og 4 seniorar höfðu ákveðið að fara í spilavíti í Connecticut (þau eru nefnilega bönnuð í Massachusetts) og ég ákvað að skella mér bara með! 2 tíma bíltúr fram og tilbaka, lagt af stað seint um kvöld og komið tilbaka um kl. 5. Og ég svo beint í vinnu kl. 7! Spilavítisferðin mín í New Orleans með Gísla Engilbert og Davíð Þór var mér vel minnistæð því þar tókst mér að vinna 100 USD en hér fór það akkúrat á öfugan veg :(
Aníhú - skemmti mér samt mjög vel!

En nú hef ég róast... í alvöru! Farin að njóta þess betur að vera í vinnunni, lesa læknisfræði og bara almennt að njóta lífsins án þess að vera á einhverju endalausu djammi. Og það er yndislegt! :)
Hef komist að því að prógrammið hér er stórkostlegt - er að vinna með afskaplega góðum hóp og allir forsvarsmenn alveg yndislegir. Og nú er vorið komið og ég farin að hlakka til ævintýra sumarsins :)
...og ætla reyndar út að djamma og djúsa í kvöld - ehhemm ;)SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-78358722072820550292009-02-23T20:23:00.002-05:002009-02-23T20:58:16.124-05:00Bandariska bradamottakanA ok, nu verdur bloggad fra spitalanum i fyrsta skipti - hence engir islenskir stafir....

Hef verid a bradamottokunni i 2 vikur og thad hefur verid ahugaverdur timi. Her eru bradamottokulaeknar eiginleg starfsstett sem ser um fullordins- og barna-bradamottokuna og vid aumingjans internarnir faum smjorthefinn af thessu i 2 vikur. Her er acute hlid og non-acute hlid asamt 3 trauma herbergjum thar sem tekid er a moti bilslysum, hjartastoppum, skotarasum o.s.frv. Yfirleitt er nog um ad vera og hefur mer stundum fundist nog um. Acute hlidin er bara eitt stort rymi med tolvum fyrir hjukkur og laekna i midju herberginu - yfirleitt eru nokkrir ronar ad sofa ur ser, stundum kallandi okvaedisordum hvern a annan yfir herbergid, a.m.k. 1 sjuklingur med psykosu bundinn nidur i rum ad tala vid sjalfan sig eda oskra a okkur, 1-3 trauma i gangi a hverjum klukkutima (getur nu verid rolegra a nottunni, serstaklega a virkum dogum) og svo medisinskt veikir sjuklingar sem eru a leid upp a deild/gjorgaeslu. Ad sitja i thessu herbergi i 12 tima i ollum latunum getur reynt a taugarnar...
Hef sed ymislegt sem madur saei sennilega seint heima - t.d. Nigeriumann sem labbadi inn a bradamottoku i Nigeriu med skerandi brjostverk. Laeknar thar brugdu a hann omtaeki, greindu hann med aorta dissection og sogdu honum ad hans eina von til ad lifa af vaeri ad stokkva upp i naestu flugvel til Boston! Og hingad kom hann, beint a BMC fra flugvellinum og var kominn a skurdarbordid 3 klst. seinna. Med dissection fra aortarot nidur ad iliaca-aedum!
Eda dement sjotuga manninn fra Haiti sem taladi ekki stakt ord i ensku og samdi illa vid eiginkonuna heima - familian keyrdi hann barasta i naesta shelter fyrir heimilislausa med einn poka med fotum og lyfjum og aetladi ad geyma hann thar thar til elliheimili fyndist. Aumingja kallinn skildi ekkert sem var sagt vid hann, tokst nu ad rolta aftur heim til sin - var tha keyrdur aftur nidreftir og thad endadi med thvi ad staffid kom med hann a bradamottokuna. Okkur tokst ad pusla sogunni saman a 5 klst. og bidja dotturina ad gjora svo vel og koma og na i fodur sinn - shelter fyrir heimislausa vaeri enginn stadur fyrir dement mann sem skildi ekki stakt ord i ensku!
Ja - thad er margt undarlegt her.

Annars hefur verid nog um ad vera hja mer undanfarnar vikur - mikill gestagangur a Shawmut :)
Tinna, Oli og Vala komu fra New York um daginn og Inga fra Islandi. Attum saman meirihattar helgi thar sem raudvini og ostum var torgad og skalad i kampavini a Top of the Hub (sem er by the way ad verda ein eftirlaetisidjan min her :)
Svo stoppadi Hlynur vid her i sidustu viku og Orvar kom og tok step 3 og stoppadi nokkra daga. Okkur Orvari var bodid i bollukaffi til Gunnars og Elfu i gaer, Gunnar er her i gigtar-fellowshipi a BMC og eru thau hjon alveg yndisleg. Bua her i South End, ekki langt fra mer. Mikid var nu gott ad fa bollukaffi - einhvern veginn jafnast donuts a Dunkin (sem eg er tho farin ad gaeda mer a iskyggilega oft...) ekki alveg a vid islenskar vatnsdeigsbollur. Nu tharf eg bara ad verda mer uti um saltkjot og baunir a morgun, hmmm.... annars erum vid Olof og Sigrun a leid til New York um naestu helgi a islenskt thorrablot! Hlakka mikid til enda mikill thorrablotsmataraddaandi!SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-49050750734297568592009-01-26T22:03:00.003-05:002009-01-26T22:57:45.703-05:00SandkassaleikurÓ man.... þetta blogg mitt átti aldrei að fjalla um íslensk stjórnmál en nú virðist það einhvern veginn óhjákvæmilegt... kannski af því ég er hér í USA og hef fáa til ræða við sem hafa actually áhuga á íslenskum stjórnmálum... eða kannski af því ég ER hér í usa, þá einmitt hef ég enn krafta og þrek til að ræða íslensk stjórnmál!?!
Aníhú - það komu fleiri en einn og tveir upp að mér í dag og spurðu hvað væri eiginlega að gerast á Íslandi? Og ég gat barasta ekki alveg svarað þeim...

Mér hefur alltaf reynst vel að flokka og númera hluti - ætla að gera tilraun með pælingar mínar í dag sem virðast reyndar ekki vel flokkaðar í mínum huga, well let´s try:

1) Ok - stjórnin fallin... það sem við vildum vissulega, fólk varð að bera ábyrgð á hruni efnahagslífsins en bíddu.... stjórnin fallin, bar einhver ábyrgð? Jú Björgvin G., hann bað þjóðina afsökunar, lét Fjármálaeftirlitið fjúka - mjög gott mál. En hvað með hina?

2) Sandkassaleikur flokkanna - ásakanir ganga á víxl. Gísli Marteinn segir að innanflokksátök Samfylkingar hafi gert út um ríkisstjórnarsamstarfið. Ég er ósammála, held að aðgerðarleysi og einlæg valdagræðgi hafi gert út um samstarfið. Sérstaklega af hálfu Sjálfstæðisflokksins - því miður... þar eru nefnilega margir efnilegir einstaklingar sem ég hefði viljað sjá í þjóðstjórn. En Geir var ekki tilbúin til að láta undan, nei... hann var ekki tilbúinn til að láta þann stjórnmálamann sem hefur hlotið mestar vinsældir í könnunum síðustu 2 ára leiða nokkurs konar samstarf...

3) Af hverju ekki þjóðstjórn? Eru þetta ekki erfiðustu tímar sem þjóðin hefur staðið fyrir síðan Sturlungaöld leið undir lok?!? Af hverju geta menn ekki sameinað krafta sína, sett fram sitt bestasta og heiðarlegasta fólk til að sitja í þjóðstjórn? Af hverju geta flokkarnir ekki lagt niður sínar stríðsaxir og unnið að sameiginlegu markmiði - reyna að bjarga því sem bjargað verður á þessu landi, bjarga heimilunum, fyrirtækjunum, lífeyrissjóðunum... er það til of mikils mælst? En nei, Geir segir:

Þjóðstjórn er besti möguleikinn í stöðunni að mati Geirs H, Haarde formanns Sjálfstæðisflokksins en kemur þó vart til greina nema Sjálfstæðisflokkurinn fái Forsætisráðuneytið.

Af hverju í ósköpunum ætti Sjálfstæðisflokkurinn að leiða Forsætisráðuneyti frekar en einhver annar. Flokkurinn gerði út um mögulega þjóðstjórn því miður - á tímum þar sem allir ættu að einbeita sér að því að slökkva í eldum þjóðarbúsins og bjarga því sem bjargað verður frekar en að vera í sandkassaleik! Ótrúlegt! Ég sem hélt að þessi dagur gæti ekki orðið annað en góður - að menn og konur legðu niður sverðin, tækjust í hendur og ynnu fyrir þjóðina, fyrir landið, sameiginlega að einu markmiði - að bjarga því sem bjargað verður - áður en það verður of seint!

4) Alþingiskosningar í maí - sorrí, það er barasta fáránlegt! Að flokkarnir 5 fari að einbeita sér að prófkjörum og kosningum frekar en því sem máli skiptir. Hver veit su sem hvað hver flokkur stendur fyrir í augnablikinu - mér finnst eins og hvirfilbylur hafi gengið yfir pólitíska grundu landsins og hrist upp í öllum, svo mikið að ég sé ekki lengur að það skipti máli hvort einhver sé Framsóknarmaður eða Samfylkingarkona - ég meina, erum við ekki öll Íslendingar? Og viljum við ekki berjast fyrir tilveru okkar og komandi kynslóða?!? Er þetta ekki einmitt tíminn til að taka niður bleiku, pólitísku sólgleraugun og sjá heiminn í réttum lit. Er þetta ekki tíminn til að sameina þjóðina - það er reyndar mjög sennilegt að þjóðin sé löngu sameinuð en ekki stjórnmálamenn - og akkúrat núna reyna þeir að sundra þjóðinni í fylkingar, í Framsóknarflokk, Sjálfstæðisflokk, Samfylkingu, Vinstri-græna og Frjálslynda - já og svo má ekki gleyma "mótmælendum" sem hafa auðvitað bara eitt í huga, jú þeir ætla FRAM í næstu þingkosningum... nei, krakkar, nú verðum við barasta að fullorðnast svolítið, hratt!

Við berum öll ábyrgð á því að láta ekki glepjast aftur af flokkadráttum - að einblína á aðalatriðin, fólkið í landinu, náttúruauðlindir okkar, börnin, samheldnina og byrja upp á nýtt - læra af síðustu 10 árum okkar sögu, ýta þeim í burtu og móta framtíðarsýn okkar aftur!

Vá, nú hef ég aldeilis látið hugann reika - veit ekki hvort númeringin hjálpaði eitthvað til, sennilega ekki. En ég er enn stolt af Íslendingum, nú megum við barasta ekki leyfa "stjórnmálaöflum" að eyðileggja þetta fyrir okkur. Þetta mál er svo miklu stærra en Geir vs. Solla eða Vinstri-grænir vs. Sjálfstæðisflokkurinn...
SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com5tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-36686915385972300562009-01-25T12:49:00.002-05:002009-01-25T14:39:36.179-05:00Þvílík vika!Það er eiginlega ekki hægt annað en blogga í lok þessarar viku!
Stórkostleg vika - núna hef ég fylgst með fréttum daglega, USAískum og íslenskum...

Barack Obama tók við forsetaembættinu á þriðjudag - það var dagur sem rennur mér seint úr minnum. Kl. 12 á hádegi sór hann eiðinn, að vísu hálfklaufalega þar sem chief of justice fór ekki rétt með hann, en eiðinn sór hann engu að síður :) Og hélt svo stórkostlega ræðu fyrir framan 2.000.000 manna í Washington. Ég sat í salnum á hermannaspítalanum með 30 manns og fólk hlustaði af athygli - með bros á vör! Og svo horfðum við á George Bush og frú fljúga burt úr Hvíta húsinu með þyrlu - já, loksins loksins lauk valdatíð Bush og Bandaríkjamenn eru fegnir og horfa vonbetri til framtíðar. Obama hóf svo störf á miðvikudaginn og hefur á þessum 5 dögum gert marga góða hluti - dæmi:

- ætlar að loka Guantanamo fangabúðunum

- setti hömlur á lobbyisma á þinginu

- frysti laun embættismanna sem þéna meira en 100.000 USD á ári

- skipaði sendinefnd til að miðla friði í Ísrael/Palestínu

- ógilti lög sem bönnuðu stofnunum sem studdu fóstureyðingar að fá public funding

Og hann ætlar að standa við aðskilnað ríkis og kirkju - eitthvað sem er afskaplega mikilvægt hér í USA því hér þvælist kristin trú hreinlega of oft fyrir raunverulegum, mikilvægum málefnum. Las til dæmis í New York Times um daginn að í Texas debatera menn um skólabækur. Debatinn snýst um það hvort skólabækur eigi að kenna þróunarkenningu Darwins eða hvort þær eigi að innihalda orð efasemdarmanna (þ.e. kristinna manna) um ýmis göt í kenningunni og benda þá frekar á texta Biblíunnar um upphaf lífs á jörðu... já, einmitt! Af því að texti Biblíunnar inniheldur náttúrulega engin göt! Alveg merkilegt - hugsið ykkur ef þetta fólk myndi nú einbeita sér að einhverju sem skiptir heiminn raunverulegu máli eins og beislun vetnis sem orkugjafa... eða eitthvað álíka - þá værum við í góðum málum.

Annars sá ég að Meaghan vinkona kommenteraði á facebook á þriðjudag að hún væri loks, eftir langan tíma, stolt af því að vera Bandaríkjamaður!

Og í dag er ég stolt af því að vera Íslendingur! Loksins loksins virðast stjórnvöld hafa vaknað upp af þungum Þyrnirósarsvefni og ætla að taka til í svínastíunni. Og það er þjóðinni að þakka! Þjóðinni sem reyndi að mótmæla friðsamlega hvern einasta laugardag frá því í október án þess að nokkuð gerðist... og það var ekki fyrr en fólk fór að berja í potta og glugga alþingishússins sem hlutir fóru loks að gerast! Auðvitað var óskemmtilegt að sjá fólk berja í hjálma lögreglumanna, gera aðsúg að veikum forsætisráðherra og kveikja í bekkjum. En það má ekki gera það að aðalatriðum í þessu - aðalatriðið er í mínum huga kristaltært. Þjóðin verður og er að þjappa sér saman, stjórnvöld verða að taka viðeigandi og margumbeðin skref í átt að þjóðarsátt svo uppbyggingarstarfið megi hefjast. Og í því verða allir að taka þátt.

Björgvin Sigurðsson ríður á vaðið og hans verður örugglega minnst fyrir það - snilldarmúv hjá manninum... við Íslendingar eigum nefnilega gott með að fyrirgefa en til þess að fyrirgefa þá verður fólk fyrst að viðurkenna mistök, biðjast afsökunar og axla ábyrgð (við eigum meira að segja svo auðvelt með að fyrirgefa að stundum þarf fólk ekki einu sinni að biðjast afsökunar - sjáið til dæmis hvernig Vestmanneyingar fyrirgáfu Árna Johnsen og kusu hann aftur inn á þing!).

Já - nú eru spennandi tímar í Bandaríkjunum og á Íslandi - og ég sakna þess svo sannarlega að geta ekki verið heima til að leggja hönd á plóg!

Að lokum vil ég benda ykkur á blogg Láru Hönnu http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/

Þá sérstaklega færslu hennar frá 25. jan sem ber nafnið "Enn öflugri mótmæli" - stórkostlegur texti!

SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-87788144432641134762009-01-19T19:16:00.003-05:002009-01-19T19:46:51.468-05:00I have a dreamÍ dag er frídagur í Bandaríkjunum - Martin Luther King dagurinn sem er haldinn 3. mánudag í Janúar í kringum fæðingardag King. Og nú eru spennandi tímar í USA. Barack Obama tekur við forsetaembættinu á morgun, 20. janúar - inauguration day!
Búist er við 2.000.000 manna að fylgjast með í Washington DC klukkan 12 á hádegi á morgun þegar Barack Obama verður 44. forseti Bandaríkjanna - svo sannarlega sögulegur atburður, ekki síður en ræða MLK árið 1963.

Heimurinn fagnar, Bostonbúar fagna og ég fagna - loksins, loksins komast Bandaríkin á betri braut, beinni braut og geta vonandi endurheimt sess sinn!

Já, draumur Martin Luther King virðist hafa ræst :)SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-45189848317375120182009-01-14T18:19:00.002-05:002009-01-14T18:26:31.404-05:00Kominn tími á blogg um efnahagsástandið...Jæja, get ekki annað en bloggað aðeins um íslensku kreppuna. Rakst ég á blogg Sigmundar Gunnlaugssonar í dag, sjá http://sigmundurdavid.eyjan.is/ Hann ætlar víst að gefa kost á sér í formannsslaginn í Framsóknarflokknum og þykir mér það gott. Við þurfum nýtt blóð, fólk sem hefur vit á viðskiptum og hagfræði. Ég held það skipti ekki lengur máli í hvaða flokki fólk er, þetta virðist allt af sama meiðinu. Áhugavert að sjá bloggið hans um 500 milljarðana... hann hefur jú barist mikið gegn því að ríkisstjórnin skyldi steypa okkur í þessar skuldir. En vá hvað þetta er rétt hjá honum - hvernig á þjóðin nokkurn tímann að geta greitt niður 500 milljarða króna skuld! Eignir Landsbankans munu ekki nærri duga til og eins og hann bendir réttilega á eru örugglega margir aðrir kröfuhafar sem eiga eftir að lögsækja. Hvernig datt ríkisstjórninni í hug að samþykkja að greiða þetta allt! Hvers konar sérfræðinga höfðu þeir samráð við. Og hvernig er hægt að taka slíka ákvörðun án þess að bera þetta undir þingið?!? Er þetta lýðræði? Íslenskt lýðræði kannski?
Það er hrikalegt að heyra fréttir um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu og á öðrum stöðum í þjóðfélaginu og þetta er alveg örugglega bara byrjunin. Úff - ég svekki mig svo mikið á þessu að ég er farin að forðast að lesa fréttir að heiman nema kannski svona 3. hvern dag!SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-62240578950781619972009-01-06T18:01:00.002-05:002009-01-06T18:11:18.815-05:00Star TrekJessss... ég hef hafið fyrra Star Trek áhorf aftur!

Þarfnast kannski smáútskýringar fyrir þá sem þekkja mig minna. Ég er nefnilega forfallinn Star Trek áhangandi og hef verið frá því ég var 10 ára og horfði á Next Generation í Danmörku. Ég og Svava systir höfum verið í þessu saman - The Next Generation, Deep Space Nine, Voyager - allt eðal seríur. Fílaði reyndar aldrei gömlu þættina, þeir voru einhvern veginn of hallærislegir...
En nú er ég að horfa á Voyager, seríu 5. Það er nefnilega þannig að ég á ekkert sjónvarp svo ég horfi bara á alls konar þætti í tölvunni. Það er fínt. Hrikalegt að horfa á sjónvarp hér í USA, alltof mikið af auglýsingum, algjör tímaþjófur.SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-56032223245576697672008-12-31T17:39:00.002-05:002008-12-31T17:57:53.208-05:00Gamlárs!Komið að uppgjöri - enn einu sinni - vá hvað tíminn flýgur!

Ég sit hér undir skreyttu jólaplöntunni minni og sötra rauðvín og hlusta á Díönu Ross and the Supremes (don´t ask...). Og bíð eftir nýja árinu á Íslandi. Ætla nefnilega að fagna nýja árinu tvisvar í kvöld - ætla fyrst að skála við familíuna í gegnum skype eftir klukkutíma og svo skála við vini á áramótaballi á Hyatt Regency hótelinu 5 tímum seinna! Já, ekki amalegt það... :)

Annars varð ég fyrir undarlegri reynslu áðan. Labbaði nefnilega inn í áfengisverslun á gamlárs og þar inni var bara enginn! Ha ha, hef nú bara aldrei upplifað slíkt áður, var með einhverjar áhyggjur af röðum en áfengisinnkaup í stórum stíl á gamlárs virðist þá bara gerast á Íslandi - kemur reyndar ekki á óvart. Búðarfólkið sagði að ég myndi örugglega eiga góð áramót, ætli það hafi verið að skírskota til áfengismagns?!?

Eitt komment á enskuna - skil ekki hugtakið New Years Eve. Mér finnst gamlárskvöld miklu skynsamlegra, finnst ykkur ekki? Síðasta kvöld gamals árs, svo tekur við nýtt...

Annars óska ég öllum mínum kæru fjölskyldumeðlimum og vinum nær og fjær gleðilegs nýs árs. Þakka ykkur allar góðu stundirnar á liðnum árum. Og skemmtið ykkur nú ærlega í kvöld! Sprengið nokkra flugelda fyrir mig :)SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-66668485906832184582008-12-28T22:49:00.002-05:002008-12-28T22:58:05.159-05:00SíSí á ZuZuÓkei, verð að koma tvennu á framfæri:
A. Jólamáltíðin heppnaðist vel. Ég get þá raunverulega eldað læri :) og haft mjög gaman af! Gyðingurinn klikkaði reyndar á því að koma með ham en Sam reyndi hvað hann gat allan jóladag að finna skinku í Boston. Og það var hægara sagt en gert! Alls staðar lokað og enginn tilbúinn til að selja okkur skinku. Hann gekk meira að segja svo langt að auglýsa eftir ham á Craig´s list en allt kom fyrir ekki. Eini staðurinn í Boston með opið var náttúrulega Chinatown en þeir gátu bara selt okkur heila kjúklinga með haus, lappir og fjaðrir og við vorum ekki alveg í stuði fyrir plokkerí... En þetta reddaðist nú allt því Ólöf kom með hangikjötsafganga frá aðfangadagskvöldi, Amanda með pottrétt og svo komu hinir með dessert og vín. Svo þetta var hin notalegasta veisla á mínum fyrstu jólum í Boston :)

B. Ég hef loks fundið hinn fullkomna djammstað í Boston. Nefnilega ZuZu í Cambridge! Hann er meiriháttar, þarna eru engin sjónvörp (sjaldgæft, hér er alltaf sjónvarp í gangi, allsstaðar!) og eftir því sem áfengisandinn færðist yfir fólk þá fóru nánast allir að dansa, svona þar sem þeir stóðu. Við Sam og Meaghan skemmtum okkur konunglega! Þetta verður pottþétt testað aftur ;)SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-65669641443648221542008-12-23T22:05:00.004-05:002008-12-23T22:24:14.540-05:00Lambalæri, USAísk skinka og góður félagsskapurJamms, það verður að viðurkennast að ég ætla að reyna mig við lambalæriseldamennsku á jóladag. Hef nú barasta aldrei eldað lambalæri áður held ég - svo þetta verður spennandi. Annars er þetta matarboð mitt heldur betur að vinda upp á sig. Hélt fyrst að þetta yrðum við Ólöf og mögulega 1-2 í viðbót en nú á ég allt í einu von á 10 manns í mat, haha... eins gott að þetta lambalæri heppnist. Ætla að hafa sveppasjerrísúpu a la amma á undan, mmmm.... við amma áttum langt og gott samtal í gær um eldamennskuna og reyndar ég og mamma daginn áður - já ég hlýt að geta þetta :)
Annars ætla nú allir að leggja í púkk - ég bað til dæmis gyðinginn um að koma með skinku, hann sagði: "Sure SiSi, I can bring ham, that can´t be that hard to cook" og svo tautaði hann í hálfu hljóði að hann vonaði að móðir sín kæmist ekki að þessu. Og þá fyrst fattaði ég gyðinga-skinku conflictinn, hann vildi samt endilega koma með skinku og mér fannst þetta náttúrulega bara bráðfyndið :)
Svo fórum við Sam í Stop´n´Shop áðan og versluðum í matinn. Hann Sam minn er svo yndislegur - einstaka sinnum á lífsleiðinni hittir maður fólk sem maður smellur algjörlega með og Sam er einn af mínum fullkomnu smellum. Ég held maður þekki svoleiðis fólk úr fyrra lífi eða kannski er þetta af því við erum bæði bogamenn?!? Raunar eiga Sam og Lovísa æskuvinkona nákvæmlega sama afmælisdag. Kannski er það dagurinn - ég fitta kannski best með fólki sem eiga afmæli 23. nóv.? Aníhú þá var nóg að gera í Stop´n´Shop. Og nú er ég klár fyrir jóladag eða ég vona það alla vegana...SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-71694821658974022042008-12-21T19:50:00.002-05:002008-12-21T19:59:54.149-05:00Gúmmístígvél og jólasveinahúfurÞað kemur mér endalaust á óvart hversu ósmekklegur kaninn getur verið í klæðaburði. Spáði mikið í þessu á leiðinni í bæinn í dag, í leit að síðustu jólagjöfinni. Hér hefur snjóað nær stanslaust í 3 daga og kominn heilmikill snjór - voða jólalegt :) Hefði haldið að kuldaskór væru þá málið en nei, þá labbaði annar hver maður um í gúmmístígvélum! Og svo er ekki óalgengt að sjá fullorðið fólk með jólasveinahúfur, það er náttúrulega bara svolítið jólalegt.

Jamms, ég pældi (hneykslaðist) mikið í þessu og þá byrjaði náttúrulega að rigna - alveg mátulegt á mig. Ég á rússkinnskuldaskónum mínum, varð helvot í báða fætur, labbandi um í ferlegu slabbi niður á Copley Square!
Já, látið ykkur ekki bregða ef ég sést skjótast um á gúmmístígvélum næsta vetur...SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-37099119495626886402008-12-19T14:23:00.003-05:002008-12-19T14:32:32.555-05:00Fyrsti snjóstormurinn!?!Ok... í anda stuttra blogga!

Fyrsti snjóstormur vetrarins á leiðinni til Boston í dag - sérstök stemmning í borginni, allir að undirbúa sig undir snjóstorminn. Reyndum að útskrifa fólk fyrir hádegi svo það kæmist nú heim áður en veðrið skellur á. Næstum enginn á götunum, fáir bílar og samt ekki byrjað að snjóa. En fólk bíður, ákveðin spenna í loftinu. Spítalinn sendi frá sér yfirlýsingu:

"Please be advised that effective noon today, BMC has declared a weather emergency.
All employees are expected to remain at work until and unless released by your immediate supervisor.
In the event that driving conditions do not improve during the evening hours, employees who are scheduled to work at 7 am on Saturday December 19, 2008 should contact the Off Shift Nursing Supervisors to request accommodations at BMC."

Whaaats! Ef ég byggi ekki steinsnar frá spítalanum þá væri sem sagt ætlast til að ég gisti þar í nótt svo mig vanti ekki í vinnu á morgun!SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-84890239376442867752008-12-16T19:22:00.002-05:002008-12-16T20:03:20.707-05:00I´m in love...Ok, hef áttað mig á tvennu.
A. Það þýðir ekki fyrir mig að hafa langt milli blogga - þá finnst mér ég þurfa að segja frá svo miklu og nenni ekki að setjast niður og skrifa og skrifa - og svo er líka líklegra að fólk nenni að lesa styttri blogg. Hef fylgst með eðalbloggara í gegnum mörg ár, nefnilega henni Tinnu vinkonu og hennar stíll er að blogga stutt og oft og ég hef alltaf gaman af að lesa :)

B. Ég er ástfangin! Ástfangin af Boston! Þessi borg er meiriháttar! Get ekki hætt að nota upphrópunarmerki, hún er svo frábær! Fattaði þetta um daginn þegar ég kom úr Íslandsheimsókn og fór að sýna íslenskum vinum mínum borgina. South End er náttúrulega æðislegt hverfi - góðir veitingastaðir á hverju götuhorni, alls konar pöbbar og kaffihús (hugguleg kaffihús, ekki bara Starbucks!). Svo er maður alltaf að rekast á alls konar fólk sem maður þekkir því allt skemmtilega fólkið í Boston býr í þessu hverfi - í alvöru! :)
Hitti til dæmis fyrsta deitið mitt hér á rölti um hverfið... en meira um borgina. Hún er lítil og þægileg, hægt að rölta niður í bæ á 15 mín. Svo elska ég "the silver line", hægt að taka hana beint í klúbbahverfið downtown og hún stoppar rétt hjá mér!
Ég fíla líka íbúðina mína í botn - innréttuð af gay miðaldra South End búa, hann nýtur nú lífsins í Feneyjum á pension - ég fæ hins vegar að njóta íbúðarinnar, veggir í margs konar litum, íbúðin full af trjám, já ég meina Trjám. Welcome to the jungle! - þurfti því ekki að versla jólatré heldur skreytti bara eitt af þessum trjám ;)

Annars verð ég að minnast aðeins á Íslandsferð sem var farin um daginn. Hún var yndisleg :) Það var reyndar dálítið deprimerandi að sitja á Boston Logan Airport og heyra kallað á bisness class farþega að fara að gateinu og enginn stóð upp! ENGINN að ferðast á bisness class og vélin hálftóm! En það var yndislegt að hitta fjölskyldu og vini og sjá að allir hafa það nú gott þrátt fyrir kreppu. Gott að finna samstöðuna hjá fólkinu en að sama skapi slæmt að finna hvað stjórnvöld virðast ekki slá í takt við þjóðarsálina. Gæti nú vel bloggað um það í marga klukkutíma en ætla að láta það vera í bili. Reyndi að mótmæla fyrir utan seðlabankann en mér leið reyndar hálfkjánalega þarna í skítakulda og fólk í kringum mig að hrópa einhver slagorð. Held ég sé bara týpískur Íslendingur sem kann ekki að mótmæla! En er mjög impressed by people (ætla að leyfa mér að sletta á ensku ef ég er lost for words) sem kann að mótmæla, nauðsynlegt á þessum tímum!
Familían tók vel á móti mér og ég fór í hverja glæsiveisluna á fætur annarri. Fékk uppáhaldið mitt á afmælisdaginn, hangikjöt! Mmmmm... og svo fiskigratín hjá frænku (já og koníak!), humar upp í sveit, hrygg hjá mömmu og pabba, kótilettur hjá ömmu, skrapp á Vegamót og fékk mér burrito, mmm mmm mmm - mætti halda að ég hafi bara borðað!
En það er ekki rétt því ég ræddi líka um kreppuna... já ræddi kreppuna út um allt nema kannski í saumaklúbbnum mínum (takk stelpur!). Og í lok 12 daga dvalar var ég orðin svo pirruð og reið út í auðmenn og bisnessmenn og ríkisstjórnarmenn og já... það var kominn tími til að fara heim! Afslappandi að koma til Boston. My lovely Boston :)SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-288094214555669912.post-22881562422000473832008-10-24T22:47:00.002-04:002008-10-24T23:20:38.360-04:00Party time!Heijós!
Ég er svo glöð að geta sagt ykkur að hákarls/brennivínspartýið mitt a.k.a. shark/blackdeath partýið var rjúkandi success! :)
Kanarnir gátu raunverulega sleppt aðeins fram af sér beislinu og skemmt sér - þetta minnti á íslenskt partý, hei nei... þetta var íslenskt partý! Allt áfengið kláraðist! Merkilegt! Ég náði sem betur fer að koma drukkna gaurnum út áður en hann byrjaði að æla, honum tókst reyndar að hella yfir útidyrahurðina fyrst. Það er nefnilega þannig að fólk hér virðist annað hvort fá sér 1-2 drykki svo ekki sér á því eða missa alla stjórn, alveg á rassgatinu ælandi einhvers staðar úti í horni. Eins og hún aumingja Melissa mín sem í intern retreat ferðinni endaði ein úti á dansgólfi sparkandi karatespörkum út í loftið... og svo hann Jake sem endaði intern retreat ferðina á því að hella drykknum sínum út í öll horn og ofan í arininn... já, þetta náðist á myndband sem endaði svo inni á facebook og ég held hann hafi verið hæst ánægður með það!!!

Já, intern retreat ferðin var farin fyrir 2 vikum eða svo, klukkutíma akstur upp í sveit. 60 internar + staffið úr prógramminu. Gist eina nótt - kvöldið fór auðvitað í skemmtilegheit, dans og gítarspil. Dagur 2 fór í að ræða hvað betur mætti fara í prógramminu. Það er gaman að finna hvað staffið (prógramm directorinn, aðstoðarprógram directorarnir, skrifstofufólkið og chief residentarnir) leggja sig mikið fram við að okkur líði vel. Þau hlusta á okkar kvartanir/tillögur að betrumbótum og breytingar eru tíðar - t.d. er búið að stytta innlagnarvaktirnar til að reyna að minnka álag. Svo er verið að útvega öllum teymum fartölvur svo hægt sé að ordinera á stofugangi o.s.frv. Fundir eru haldnir 1x í mánuði svo fólk geti bent á hvað betur mætti fara.

En aftur að ferðinni - fólki fannst mörgu merkilegt að ég skildi spila á gítar - og jafnvel merkilegra að ég kynni lög með Elvis... hmmm.... verð sennilega að extentera lagaúrvalið mitt eitthvað. Intern ferðin í fyrra varð fræg fyrir það að fólk stakk sér nakið í vatnið og reykti hass - við höguðum okkur betur, John leitaði reyndar lon og don að þessu vatni með aumingja Rachel í eftirdragi (hún átti að passa upp á hann en var víst ekki minna drukkin sjálf) en þau komu öll krambúleruð tilbaka eftir göngu í kolniðamyrkri í þéttum skógi. Kvöldið endaði svo á því að Jake var algjörlega sannfærður um að við ætluðum öll að snúa hann niður og sprauta hann niður með haldóli en Rachel tókst loks að róa hann niður inni á baði... :-)

Aníhú- það var alveg merkilegt hvað fólk var tilbúið að smakka hákarlinn. Ég hafði reyndar sett það sem inngönguskilyrði að allir fengju hákarlsbita og brennivínsstaup. Öllum líkaði harðfiskurinn. Mörgum fannst svo hákarlinn betri en brennivínið! en engum fannst lyktin góð og í lok partýsins fann ég hákarlinn úti á svölum lengst úti í horni... Ég reyndi svo sjálf að geyma hann inni í ísskáp svo ég gæti nú notið hans sem lengst en varð svo 2 dögum seinna að borða hann allan á einu bretti þar sem ég var sjálf hætt að þola lyktina, haha :)

Annars er ég á góðri rotation á spítalanum núna - er nefnilega á hem/onc (blóðsjúkdómar/krabbamein) deildinni. Það er definetely eitt af topp þremur sérfræðifögunum sem ég er að spá í og fyrsta vikan hefur verið góð. Þetta er reyndar óvenjuerfið rotation þar sem maður leggur inn sjúklinga annan hvern dag frá kl. 7-19 en er í staðinn aldrei yfir nótt. Mér líkar vel eftirfylgdin sem maður fær því ég sé um alla sjúklinga sem ég legg inn alveg þar til þeir útskrifast. Og svo fær maður mikla kennslu því residentinn er fróður um almenna medisín, fellowinn (sá sem er í sérnámi í ákveðinni undirsérgrein) kennir margan fróðleik um sérgreinina og svo er sérfræðingur sem gengur stofugang daglega og sér um kennslufundi a.m.k. 3x í viku. Og þar fyrir utan eru svo hádegisfundir alla daga.

Nú er bara mánuður þar til ég kíki heim á skerið - hlakka mikið til :)SíSíhttp://www.blogger.com/profile/10824848042547832385noreply@blogger.com0