26.6.08

Lets get ready to rumble!!!

Hei kids!
Þá byrjar það - bloggið mitt, dvöl mín í USA, vinna mín á BMC - og mér líður svona eins og boxara rétt áður en bjöllunni er hringt...
Annars hefur lífið farið vel af stað hér í Boston. Kom f. 2 vikum og er búin með meirihlutann af öllum þessum leiðinlegu en jafnframt lífsnauðsynlegu hlutum eins og fá sér bankareikning, síma, ganga frá alls konar pappírsmálum (USA er pappírsland dauðans) o.fl. o.fl. Svo byrjaði spítalinn rólega á 8 daga orientation þar sem okkur voru kynnt alls konar mál, allt frá því hvernig festa á berklamaskann á sig (já og athugað hvort hann væri berklaheldur með því að sprauta sakkaríni framan í mann!) að því hvernig lífeyrismál, heilbrigðistryggingar og stéttarfélög virka hér. Heyrðu, já og svo var farið með Íslendinginn í hvalaskoðun úti fyrir Boston-ströndum. Hafði nú vit á því að þegja að mestu um okkar hvalveiðar, a.m.k. nefndi ég það ekki við fólkið sem stýrði hvalaskoðunarbátnum og hafði gefið öllum hvölunum nöfn og vissi hvað þeir voru gamlir og hvað þeir áttu mörg afkvæmi o.s.frv.
Krakkarnir í prógramminu eru 60 og fyrstu kynni af þeim eru góð. Þetta er fólk alls staðar að úr USA og svo eru nokkrir útlendingar, þau sem koma lengst að eru frá Indlandi og Brasilíu. Á fyrsta degi áttu allir að kynna sig og ég varð strax þekkt sem Íslendingurinn með nafnið sem enginn gat borið rétt fram og voru margir mjög ánægðir með SíSí gælunafnið mitt nýja. Aðrir eru reyndar mjög metnaðargjarnir og eru enn að reyna við Sigurdísarnafnið - kemur oftast út sem Sykurtis með áherslu á miðhlutann -jamms... SíSíar nafnið fær sífellt fleiri áhangendur.
Svo hef ég ákveðið að gera mitt besta í að kenna USA-fólki íslenskar drykkjuvenjur. Það er merkilegt hvað djamm-lífið er allt öðruvísi hérna megin við Atlantshafið. Drykkirnir eru blandaðir 50:50 hér, t.d. G&T og fólk fær sér kannski 1 eða jafnvel 2 ef það er svona "living on the edge" týpa en drekkur þetta þá á nokkrum klst. svo það sér lítið á því. Þessi nýja blanda er hins vegar mjög hættuleg fyrir Íslendinginn sem drekkur jafnhratt og jafnmikið og heima... Frekar en að aðlaga mig að USA-drykkjuvenjum hef ég ákveðið að aðlaga USA-búa að íslenskum drykkjuvenjum og hef ákveðið að halda brennivíns/hákarlspartý sem fyrst (vantar by-the-way sjálfboðaliða í að flytja þessa hluti til mín :)
Jæja - er á fyrstu dögum vinnu, byrjaði í gær - meira um það seinna.

8 ummæli:

Svava sagði...

Hæ!
Frábært að þú sért komin með bloggsíðu, svo maður fylgist aðeins með bandarísku lífi þínu. Hlakka til að heyra síðan hvernig mun ganga að aðlaga USA-búa að íslenskum drykkjuvenjum... það gæti orðið skrautlegt.

Auður sagði...

Núna er hægt að fylgjast með þér á facebook og bloggi. Það er bara gott mál. En gangi þér vel að breyta drykkjarvenjum kanans, bíð spennt að heyra af viðbrögðum við hákarlinum.

annan sagði...

Hæhæ.
Langt síðan að maður hefur séð þig og það verður greinilega ennþá lengra í næsta skipti.
Veit ekki hvernig það á eftir að ganga með að breyta kananum, skilst að það geti oft verið svolítið erfitt.
Vona bara að þú hafir það gott þarna út og maður fylgist kannski barasta með þér hér.

Nafnlaus sagði...

oh hvað ég er ánægð með þig að þú sért byrjuð að blogga. Vertu nú dugleg að fræða okkur um Grey's lífið í Boston og hvernig gengur að venjann Kanann á almennilega drykkjusiði.
Það er mjög skrítið að koma í heimsókn á Klakann og engin Sigurdís til að taka svona eins og 1 Ölstofu kvöld með. Skemmtanalíf Reykjavíkurborgar er ekki hið sama án þín.
Kv.Björk

Nafnlaus sagði...

Frábært að þú ert byrjuð að blogga svo maður geti fylgst með Grey´s lífinu. Sé þig "Sykurtis" alveg í anda með þessa stórhættulegu blöndu :) Hlakka til að fá fleiri fréttir.
Kveðja Inga

SíSí sagði...

Já - ég sakna líka Ölstofunnar Björk, þú verður barasta að kíkja til Boston. Ég verð búin að finna Ölstofu lookalike hér þegar þú kemur...

Unknown sagði...

já ég er búin að ákveða hvað verður jólagjöfin frá mér til mín þetta árið. Ferð til Boston:-)Þannig að þú hefur um 6 mán til að finna barinn annars förum við bara á Cheers;-)

SíSí sagði...

Mér líst svakalega vel á það ;-) Mun nýta þessa 6 mánuði vel í bjórstaðarleit!

Kvöldmatur á pallinum hjá Ólöfu

Kvöldmatur á pallinum hjá Ólöfu

Þorgeir, Hlynur, Janus og Barbara í heimsókn

Þorgeir, Hlynur, Janus og Barbara í heimsókn