3.7.09

Svipbrigði

Jæja, nú er kominn tími á eins og eitt blogg!
Úff, hef gert svo margt síðastliðinn mánuð að mér fallast nánast hendur að fara að segja frá því öllu - held ég verði að gera þetta í upptalningarstíl eins og Pógó, stuttum upptalningarstíl með nánari details to follow í komandi bloggum.
- kláraði step 3 í byrjun júní, nú verður næsta próf eftir ca. 2 ár - þ.e. internal medicine board prófið (er byrjuð að lesa, jæks!)
- sumarfrí á Íslandi/í Danmörku í byrjun júní, var alveg yndislegt
- sumarfrí á Miami fyrir viku, var þvílík upplifun fyrir Íslendinginn sem hefur ekki áður kynnst fólki sem á bíla fyrir 100 milljónir...
- byrjaði sem resident á CCU rotation fyrir 2 dögum, það verður án efa krefjandi (með glænýja interna sem eru að læra á kerfið) en skemmtilegt!

En verð að eyða smápúðri í að tala um titilinn á þessu bloggi - svipbrigði... hef aldrei fengið jafnmörg komment á mín eigin svipbrigði eins og á þessu eina ári hér í USA. Spítalaliðið hér og þá aðallega sérfræðingarnir eru steinhissa á öllum mínum svipbrigðum í vinnunni - Dr. Benjamin sagði við mig í dag að hún gæti nánast séð hjólin snúast í hausnum á mér þegar ég hugsa og spekulera á stofugangi, haha og augabrúnin mín (sú vinstri) er nánast orðin alþekkt hér á BMC. Og ég er að spá hvort þetta sé ekki kúltúrelt! Tjáum við okkur meira með svipbrigðum á Íslandi heldur en hér?!? I would luv some input...

3 ummæli:

Tinnsi sagði...

Orri vakti athygli mína á þessu hjá þér.. ég hafði satt að segja ekki spáð neitt í svipbrigðunum hjá þér en honum fannst þau stórskemmtileg.

Nafnlaus sagði...

Ég hef ekki tekið eftir því að þú hafir fleiri svipbrigði en aðrir. Eru Kanar með svona flöt andlit?

Ég hafði aldrei hugsað út í mismikinn fjölda svipbrigða milli manna fyrr en ég sá karakter í einhverri bíómynd gera mál úr þessu. Ef ég man rétt var hann heillaður af einhverjum sem hafði 7 svipbrigði á takteinum, þótti það mikið.
Er þetta kannski eitthvað sem Kanar spá í en Íslendingar lítið.
Kv Pétur.

SíSí sagði...

Takk mín kæru fyrir kommentin!
Ég held áfram að rannsaka svipbrigði(aleysi) hér vestanmegin við Atlantshaf....

Kvöldmatur á pallinum hjá Ólöfu

Kvöldmatur á pallinum hjá Ólöfu

Þorgeir, Hlynur, Janus og Barbara í heimsókn

Þorgeir, Hlynur, Janus og Barbara í heimsókn